Hvað er nemastofa?
Verkefni Nemastofu
Tilgangur Nemastofu atvinnulífsins er að vera samstarfsvettvangur atvinnulífsins um bætt vinnustaðanám og fjölgun faglærðs starfsfólks í atvinnulífi. Markmið félagsins er m.a. að fjölga fyrirtækjum og iðnmeisturum sem taka nema á vinnustaðanámssamning. Aðstoða fyrirtæki og iðnmeistara við að halda uppi gæðum vinnustaðanáms og markvissri kennslu og þjálfun iðnnema á vinnustað og halda úti öflugri kynningu á iðn- og starfsnámi.
Okkar markmið:
- Hvetja fyrirtæki til að skrá sig á birtingarskrá fyrirtækja með nemaleyfi í iðngreinum og aðstoða.
- Hafa yfirsýn yfir fjölda nema í vinnustaðanámi og áætla þörf á nemaplássum í iðngreinum.
- Bjóða þjálfun og fræðslu til iðnmeistara og tilsjónarmanna sem taka á móti nemum
- Vera samstarfsvettvangur umræðu um verkefni og viðfangsefni þjálfunar á vinnustað.
- Standa fyrir viðburðum og ráðstefnum um vinnustaðanám og veita verðlaun til fyrirmyndarfyrirtækja.
- Kynna iðn- og starfsnám og fjölbreytt störf í iðnaði.
Eigendur
Nemastofa atvinnulífsins er í jafnri eigu Iðunnar og Rafmenntar fyrir hönd fyrirtækja og félagsmanna sem standa að viðkomandi félögum.
Hafa samband
Ef þið hafið fyrirspurnir eða óskið eftir nánari upplýsingum má senda okkur línu á:
nemastofa(hjá)nemastofa.is
olafur(hjá)nemastofa.is
Símanúmer: 624-2500
Ólafur Jónsson Forstöðumaður Nemastofu