Nemaleyfi
Vinnustaðanám fer fram í fyrirtækjum sem hafa heimild til þess að bjóða nemum vinnustaðanám. Í reglugerð um vinnustaðanám 180/2021 er að finna nánari lýsingu þeim skilyrðum sem fyrirtæki þurfa að uppfylla til þess að fá úgefið nemaleyfi og taka nema á námssamning.
Vinnustaðanámssjóður
Rannsóknamiðstöð Íslands, Rannís, hefur umsjón með Vinnustaðanámssjóði, en sjóðnum er ætlað að styðja við fyrirtæki sem bjóða iðnnemum vinnustaðanám. Nánari upplýsingar um umsóknarfresti og fl. er að finna á heimsíðu Rannís.
Fyrirmyndarfyrirtæki
Nemastofa atvinnulífsins veitir árlega verðlaun til fyrirtækja og meistara sem hafa náð góðum árangri í þjálfun iðnnema á vinnustað. Sjá nánari upplýsingar um fyrirmyndarfyrirtækja Nemastofu atvinnulífsins.
Viltu vita meira?
Vinnustaðanám
Vinnustaðanám fer fram undir handleiðslu meistara eða tilsjónarmanns
Iðnnám
Iðnnám stunda nemendur í sinni iðngrein, í skóla og á vinnustað og sækja um að þreita sveinspróf.
Nám og fræðsla
Nemastofa veitir aðstoð þegar kemur að þjálfun, kennslu og vellíðun á vinnustað

