Vinnustaðanám erlendis Langar þig að taka hluta af náminu erlendis? Iðnnemar hafa tækifæri til að taka hluta af vinnustaðanámi sínu í öðrum Evrópulöndum. Vinnustaðanámið þarf að lágmarki að vera tvær vikur og er skráð í ferilbók nemans.Sjá nánar hér.