Mat á raunfærni byggir á þeirri hugmynd 
að nám sé verðmætt og að það sé skjalfest óháð því hvar þess hefur
 verið aflað
				Raunfærnimatsferlið er í fimm liðum:
- Kynningarfundur
 - Viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa
 - Færniskráning
 - Matssamtal hjá fagaðila
 - Áætlun um námslok
 
Í kjölfar raunfærnimats getur skipt sköpum fyrir þátttakendur að boðið sé upp á fjölbreyttar námsleiðir til að ljúka námi og er það í höndum framhaldsskólanna og/eða fullorðinsfræðsluaðila.

