Vinnustaðanám

Í vinnustaðanámi öðlast neminn skilning á hæfnikröfum sinnar starfsgreinar og þjálfast að leysa raunveruleg verkefni. Neminn vinnur eftir  stöðlum og viðurkenndum verkferlum vinnustaðarins.  Þjálfast að fylgja eftir öryggis- og umhverfiskröfum, í samskiptum og samvinnu, í gagnrýnni hugsun,  að veita þjónustu og fl. Vinnustaðanám styrkir  almenna færni nemans að sinna fjölbreytilegum verkefnum  í atvinnulífi.

Fyrirtæki sem bjóða vinnustaðanám í iðngreinum  Laus nemapláss eru m.a. auglýst á vefnum  alfred.is 

Vinnustaðanám erlendis

Iðnnemar geta sótt um að taka hluta af vinnustaðanámi sínu í öðrum Evrópulöndum. Vinnustaðanámið þarf að lágmarki að vera tvær vikur og er skráð í ferilbók nemans. Iðan fræðslusetur veitir nánari upplýsingar um styrki til vinnustaðanáms í Evrópu.    Sjá nánar um möguleika Erasmus + styrkjakerfisins um vinnustaðanám erlendis  og reynslusögur þeirra sem hafa farið til Evrópu í vinnustaðanám og  starfsþjálfun.

Ferilbækur í iðngreinum

Ferilbókin er handbók nema og lýsir verkflokkum og verkþáttum vinnustaðanáms í  starfsgrein nemans.  Neminn ber ábyrgð á skráningum í ferilbók,  merkja við viðfangsefni og verkefnum sem hann sinnir á vinnustað og lýst er í ferilbók. Neminn setur inn myndir af verkefnum, skjöl með  verklýsingum og fl. eftir því sem námi á vinnustað vindur fram. Mikilvægt er að þetta sé gert með reglulegum hætti. Framhaldsskóli stofnar ferilbók við upphaf vinnustaðanáms og setur upp námssamning sem neminn og meistari hans staðfesta. Meistarinn eða skráður tilsjónaraðili metur framistöðu nemans í vinnustaðanámi og skráir í ferilbók.

Viltu vita meira?

Fyrirtæki

Fyrirtæki með nemaleyfi eru skráð á birtingaskrá og geta sótt styrk í vinnustaðanámssjóð

Iðnnám

Iðnnám stunda nemendur í sinni iðngrein, í skóla og á vinnustað og sækja um að þreita sveinspróf.

Nám og fræðsla

Nemastofa veitir aðstoð þegar kemur að þjálfun, kennslu og vellíðun á vinnustað

Scroll to Top