Snyrtistofan Garðatorgi er fyrirmyndarfyrirtæki Nemastofu atvinnulífsins árið 2026

Í rúma tvo áratugi hefur Snyrtistofan Garðatorgi verið leiðandi í innleiðingu nýjunga í snyrtimeðferðum. Boðið fjölbreytt úrval meðferða fyrir hendur og fætur ásamt andlitsmeðferðum sem eru sérsniðnar að þörfum hvers og eins viðskiptavinar.  Áhersla er lögð á persónulega þjónustu þar sem upplifun, fagmennska og vellíðan fara saman. Fyrirtækið hefur reglulega verið með nema í vinnustaðanámi með góðum árangri og m.a. fjórum sinnum hlotið viðurkenningu fyrir góðan árangur nema sinna á sveinsprófi.  

Scroll to Top