Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, segir stöðuna í mannauðsmálum byggingariðnaðarins vera áhyggjuefni. Mörg hundruð ungmennum sé vísað frá iðnnámi árlega á sama tíma og brýn þörf er á faglærðu fólki.
„Mannauðurinn er dýrmætasta auðlindin sem við höfum í byggingar- og mannvirkjagerð, allt frá hönnun til framkvæmda,“ segir Jóhanna Klara. „Við stöndum frammi fyrir gríðarlegri uppbyggingarþörf á næstu árum, hvort sem horft er til íbúðarhúsnæðis, orkuinnviða, opinberra bygginga eða samgöngukerfis. En staðreyndin er sú að okkur vantar faglært fólk. Ef ekki verður gripið í taumana mun skortur á faglærðu fólki verða einn stærsti flöskuhálsinn fyrir áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins á komandi árum.“ Næsta haust kemur stór árgangur inn í framhaldsskólana sem eru víða yfirfullir fyrir.
Sjá grein Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur í afmælisriti Viðskiptablaðsins 16.mars 2026
